- Fréttir

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir til Myndstefs og er umsóknafrestur til kl 23:59 laugardaginn 17. ágúst. Umsóknir sem berast utan auglýsts umsóknartíma verða ekki teknar gildar. Fjármunir sem Myndstef úthlutar með þessum hætti eru hluti greiðslna til samtakanna vegna notkunar á vernduðum myndverkum sem ekki er hægt að greiða beint til einstaka höfunda, t.d. vegna þess að höfundar eru fallnir úr vernd, höfundar finnast ekki eða vegna samningskvaða-samninga (heildarsamninga).

Hægt er að að sækja um verkefnastyrki að fjárhæð 200.000 kr eða 400.000 kr. Ferða-og menntunarstyrkir eru 150.000 kr. Umsóknarform má finna hér.

Vakin er sérstök athygli á að úthlutunarreglur hafa verið uppfærðar frá fyrri árum og eru umsækjendur hvattir til þess að kynna sér þær vel áður en sótt er um styrk. Ef umsókn mætir ekki skilyrðum úthlutunarregla eða ef umsókn er ekki fyllt út skv. leiðbeiningum og reglum áskilur nefndin sér rétt til að hafna henni. Reglurnar má finna hér.

Styrkþegar síðasta árs ber að skila skilagrein um ráðstöfun styrks fyrir lok umsóknafrests þessa árs, eða fyrir 17. ágúst. Frekari styrkveitingar eru háðar því að skilagrein hafi verið skilað vegna fyrri styrks. Skilagreinar má nálgast hér.

 

Nýlegar fréttir