Í ljósi fréttaumfjöllunar um framleiðslu og dreifingu á límmiðum til íslenskra skólabarna, á vegum lögreglunnar, vill Myndstef hvetja til þess að leitað sé eftir aðstoð fagfólks við framleiðslu á myndefni, ekki síst þegar um er að ræða fræðsluefni og efni sem ætlað er börnum.
Þegar opinberir aðilar útbúa efni sem ætlað er börnum og ungmennum skiptir máli að vandað sé til verka, bæði hvað varðar innihald og myndræna framsetningu. Börn eiga að geta treyst því að fræðsluefni frá opinberum stofnunum sé rétt, faglega unnið og sett fram af ábyrgð.
Á Íslandi starfar fjölbreyttur hópur myndhöfunda, svo sem teiknarar, myndlýsendur, myndlistarfólk, grafískir hönnuðir, ljósmyndarar og aðrir skapandi sérfræðingar sem hafa þekkingu og reynslu til að miðla upplýsingum með skýrum og vönduðum hætti til barna og ungmenna.
Gervigreind getur verið gagnlegt verkfæri í skapandi vinnu, en notkun hennar leysir opinbera aðila ekki undan ábyrgð á gæðum og áreiðanleika þess efnis sem þeir birta. Þegar myndefni er framkallað með gervigreind þarf ávallt að gæta sérstaklega að mögulegum rangfærslum, villum og jafnvel höfundaréttarbrotum sem slík kerfi geta framleitt. Það er bagalegt að gervigreind sé þjálfuð upp með verkum raunverulegra listamanna, beinlínis í þeim tilgangi að sniðganga raunverulega listamenn.
Myndstef telur mikilvægt að hið opinbera móti skýra og ábyrga stefnu varðandi það hvernig opinberir aðilar nýta gervigreind í starfsemi sinni, þar sem fagmennska og virðing fyrir störfum höfunda og annarra skapandi fagstétta eru höfð að leiðarljósi.
Opinber innkaup og verkefni hafa áhrif á hina skapandi geira á Íslandi. Þegar til eru íslenskir sérfræðingar sem geta unnið slíkt efni af fagmennsku telur Myndstef æskilegt að opinberir aðilar nýti þá þekkingu og stuðli þannig jafnframt að öflugu starfsumhverfi skapandi greina.
Myndstef hvetur lögregluna jafnt sem aðrar opinberar stofnanir til að endurskoða verklag sitt við gerð efnis fyrir börn og ungmenni og tryggja að fagfólk komi að slíkri vinnu. Þetta mættu einnig fyrirtæki taka til sín, ekki síst þegar markaðssetningin beinist að börnum og ungmennum. Börn og ungmenni eiga skilið vandað, áreiðanlegt og faglega unnið efni – og opinberir aðilar eiga að sýna gott fordæmi og vanda til verka.
Innan vébanda Myndstefs starfa myndhöfundar og sjónlistafólk á öllum sviðum sjónlista, en í Myndstef eru 21 aðildarfélag og yfir 3000 manns eiga aðild að samtökunum.
Myndstef – Myndhöfundasamtök Íslands