Myndstef er heimilt að áætla greiðslur á alla endursöluaðila ef ekki er send inn skýrsla, sbr. 7. mgr. 25. gr. b, höfundalaga nr. 73/1972. Ef um enga endursölu er að ræða á tímabilinu þarf því að skila inn núllskýrslu, svo ekki þurfi að áætla greiðslur á endursöluaðila.
Allar upplýsingar um fylgirétt ásamt eyðublöðum fyrir skilagreinar er að finna hér: https://myndstef.is/notendur/endursala/endursala/
Sérstök athygli er vakin á nýju formi vegna skilagreina fyrir uppboð, sem aðgengilegt er hér: https://myndstef.is/wp-content/uploads/2026/05/fylgirettur_skilagrein_myndstef.xlsx
Bankaupplýsingar Myndstefs vegna fylgiréttargjalda eru 513-26-409891, kt. 540891-1419.
Athugið að fylgiréttargjaldi og skilagrein skal skila í síðasta lagi 30 dögum eftir að listamunauppboð fór fram, ef um sölu á listmunauppboði er að ræða en ársfjórðungslega ef um endursölu í atvinnskyni er að ræða, sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 486/2001 um fylgiréttargjald.
Þeim sem eiga eftir að standa í skilum er bent á að ganga frá greiðslum og skilagreinum við fyrsta tækifæri.
Innheimta fylgiréttargjalda byggist á 25. gr. b í höfundalögum, sem er svohljóðandi:
[25. gr. b.
[Höfundur á rétt til þóknunar við endursölu upprunalegs eintaks listaverks, þar með talið olíu-, akrýl-, tempera-, vatnslita-, gvass- og pastelmálverka, myndverka og teikninga sem gerðar eru með annarri tækni, grafískra listaverka, svo sem steinprents, koparstungu, ætingar, og tréþrykks, höggmynda, textílverka, gler- og mósaíkmynda, keramik-, postulíns-, silfur- og gullverka sem teljast til listiðnaðar og ljósmyndaverka (fylgiréttargjald). Gjaldið fellur á eintök listaverka sem gerð eru í einu eða fleiri eintökum af höfundi sjálfum eða með heimild hans. Gjaldið nær ekki til mannvirkja.
Standa ber skil á fylgiréttargjaldi við endursölu þegar um er að ræða seljanda, kaupanda eða miðlara sem starfa á listaverkamarkaði, þar með talið uppboðshús, listaverkagallerí og listaverkasala. Seljanda eða miðlara ber að standa skil á gjaldinu. Þegar aðeins kaupandi listaverks starfar á listaverkamarkaði ber þó honum einum að skila gjaldinu. Gjaldið skal aldrei nema hærri fjárhæð í íslenskum krónum en sem samsvarar 12.500 evrum.
Gjaldið skal vera í íslenskum krónum og reiknast miðað við sölugengi evru á söludegi þannig:
1. 10% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar að hámarki 3.000 evrum,
2. 5% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 3.000,01 evru upp í 50.000 evrur,
3. 3% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 50.000,01 evru upp í 200.000 evrur,
4. 1% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 200.000,01 evru upp í 350.000 evrur,
5. 0,5% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 350.000,01 evru upp í 500.000 evrur,
6. 0,25% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar fjárhæð umfram 500.000 evrur.
Rétturinn til endurgjalds skv. 1. mgr. er kræfur uns höfundaréttur rennur út, sbr. 43. gr. Réttur þessi er bundinn við höfundinn og er óframseljanlegur. Að höfundi látnum erfist rétturinn þó til skylduerfingja. Ef réttur höfundar til endurgjalds erfist ekki til skylduerfingja eða fénu verður ekki ráðstafað rennur það til samtaka rétthafa skv. 5. mgr.
Fylgiréttargjald verður aðeins innheimt af samtökum rétthafa sem hafa hlotið viðurkenningu [ráðuneytisins]. 1) Samtökin annast innheimtu gjalda skv. 1. mgr. og skil á þeim til höfunda, að frádregnu hæfilegu endurgjaldi vegna innheimtunnar. Krafa rétthafa á hendur samtökunum er gjaldkræf innan þriggja ára frá lokum þess árs er endursala fór fram. Fyrning kröfu rofnar við skriflega greiðsluáskorun frá rétthafa.
Seljendur, miðlarar og kaupendur skv. 2. mgr. skulu:
1. senda sex mánaða uppgjör ásamt skilagrein til samtaka þeirra sem getið er í 5. mgr. miðað við 1. janúar og 1. júlí ár hvert vegna endursölu listaverka, sem falla undir 1. mgr., á næstliðnum sex mánuðum, staðfest af löggiltum endurskoðanda, og
2. eftir kröfu frá samtökunum senda innan fjögurra vikna allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja greiðslu gjaldsins þegar slík krafa kemur fram innan þriggja ára frá endursölu listaverks.
Berist uppgjör eða upplýsingar um endursölu listaverka skv. 6. mgr. ekki til samtaka þeirra sem getið er í 5. mgr. innan 30 daga frá því að sérstakri áskorun þar um er beint til gjaldskylds aðila skal samtökunum heimilt að áætla innheimt fylgiréttargjald hjá viðkomandi aðila vegna endursölu listaverka. Slík áætlun er aðfararhæf.
… 2) Nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar skulu sett í reglugerð. 3)] 4)] 5)
