In Fréttir

Úthlutað var úr Höfundasjóði Myndstefs til myndhöfunda og sjónlistafólks þann þann 22. september 2026. 

Sérstök öndvegisframlög voru veitt til sex myndhöfunda, að upphæð 1 m.kr. hvert. Öndvegisframlögum er sérstaklega ætlað til þess að varpa ljósi á feril viðkomandi höfundar. Þau verkefni sem hlutu öndvegisframlag úr Höfundasjóði Myndstefs að þessu sinni eru;

Bók um feril Dóru Einarsdóttur, leikmynda- og búningahönnuðar,

Verkefni um feril Guðmundar Elíassonar, myndhöggvara,

Rannsóknarverkefni um feril og höfundaverk Kristjáns Guðmundssonar,

Ragnar Axelsson fyrir verkefnið Kvikjöklar

Rósa Gísladóttir fyrir verkefnið Mirror of Time, og

Sigríður S. Sigþórsdóttir, arkitekt fyrir verkefnið Vatn, vindur, jarðveigur og birta.

 

Alls námu verkefnaúthlutanir til rétthafa 30 m.kr., en að auki var 5 m.kr. úthlutað í ferða-, menntunar- og vinnustofustyrki. Úthlutanir og styrkir til myndhöfunda námu því alls 35 milljónum króna að þessu sinni, og vakti varaformaður samtakanna Logi Bjarnason sérstaklega athygli á því í ræðu sinni að samtökin fagna einnig 35 ára afmæli á þessu ári.

Í úthlutunarnefnd Myndstefs sátu þau Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar tilnefnd af SÍM – Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Gunnar Leifur Jónasson fyrir hönd Ljósmyndamiðstöðvar Íslands og Rósa Dögg Þorsteinsdóttir tilnefnd af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.

Í tilefni úthlutunarinnar var fagnað í húsakynnum Myndstefs, að Hafnarstræti 5, þar sem Logi Bjarnason varaformaður stjórnar Myndstefs og Vera Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Myndstefs veittu viðurkenningar með formlegum hætti vegna úthlutana og styrkveitinga.

 

Fleiri myndir frá úthlutuninni má sjá hér að neðan, myndirnar tók Ragnar Visage fyrir Myndstef.

Recommended Posts