- Uncategorized

Hópmynd af styrkþegum og starfsfólki Myndstefs. Höfundaréttur: Myndstef/GSV

Fyrr í dag fór fram sautjánda styrkveiting Myndstefs til myndhöfunda. Styrkveitingin fór fram í SÍM salnum og var yfir 10 milljónum úthlutað í verkefnastyrki og ferða-og menntunarstyrki að þessu sinni, en í heildina hefur Myndstef úthlutað yfir 110 milljónum á þessum sautján árum.

Stjórn og starfsfólk Myndstefs er sérlega ánægt með að geta stutt og styrkt starfandi myndhöfunda við störf sín, en styrkþegarnir koma frá fjölbreyttum geirum sköpunnar; myndlistarmenn, ljósmyndarar, arkitektar, teiknarar og alls kyns hönnuðir.

Fjármunir sem Myndstef úthlutar með þessum hætti eru greiðslur til samtakanna vegna notkunar á vernduðum myndverkum en eitt af hlutverkum samtakanna er að koma þeim greiðslum til myndhöfundanna, meðal annars í formi styrkja.

Opnað er fyrir styrkumsóknir í júní ár hvert og er frestur um tveir og hálfur mánuður. Sérstök úthlutunarnefnd sem skipuð er af þremur aðilum úr aðildarfélögum Myndstefs velur úr umsóknum og úthlutar styrkjunum.

Í úthlutunarnefnd Myndstefs í ár sátu;
Ásta Björk Ríkharðsdóttir fyrir hönd Félags leikmynda-og búningahöfunda,
Berglind Jóna Hlynsdóttir fyrir hönd SÍM,
Emil H. Valgeirsson fyrir hönd teiknara og kemur úr félaginu Grafía.

Unnar hafa verið talsverðar breytingar á umsóknarferli styrkja Myndstefs síðastliðin ár, en árið 2017 voru umsóknarformin gerð rafræn í fyrsta skipti. Við þær breytingar varð gríðarleg aukning á fjölda umsókna. Í fyrra voru gerðar sérstakar starfsreglur úthlutunarnefndar og í ár var skerpt á úthlutunarreglum og umsóknarformum breytt örlítið. Var það gert til þess að skýra betur reglur og auðvelda þar með umsóknir og yfirferð, bæði fyrir umsækjendur og úthlutunarnefnd.

Að þessu sinni sóttu 140 um verkefnastyrk og hlutu 39 umsækjendur styrk frá 100.000 kr og upp í 400.000 kr.
68 umsóknir um ferða-og menntunarstyrk bárust en 24 umsækjendur hlutu styrk frá 50.000 kr og upp í 150.000 kr.

Lista yfir styrkþega verkefnastyrkja 2019 má finna hér.
Lista yfir styrkþega ferða-og menntunarstyrkja 2019 má finna hér.

Nýlegar fréttir