Mennta-og menningarmálaráðuneytið hefur nú tilkynnt hvernig verður úthlutað aukafjármagni til menningarmála sem samþykkt var á Alþingi 30. mars. Stuðningur þessi er ætlaður að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins.
Aukaúthlutun styrkja fer fram og nemur heildarfjárhæð 500 milljónir. Sækja þarf um styrki hjá viðeigandi sjóðum, en framlögin skiptast sem hér segir:
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Stjórnarráðs hér og hjá sjóðunum sjálfum.
Við hvetjum alla myndhöfunda til þess að kynna sér skilyrði styrkveitinga og sækja um. Athugið að tími umsóknafresta getur verið ólíkur eftir sjóðum.