- Fréttir

Vissir þú að 1. janúar 2020 tóku gildi breytt skattalög sem fólu í sér að greiðslur vegna seinni afnota höfundavarinna verka eru fjármagnstekjuskattskyldar (22%) en ekki tekjuskattaðar (31,45 – 46,25%), eins og áður fyrr.

En hvað þýðir þetta?

Hvað eru „seinni afnot“?

Skiptir máli hvort ég fái greiðslur sem einstaklingur eða fyrirtæki?

Get ég áfram greitt tekjuskatt í stað fjármagnstekjuskatts af þessum tekjum?

Get ég áfram dregið kostnað á móti tekjum ef ég greiði fjármagnstekjuskatt af tekjunum?


Myndstef stendur fyrir kynningu á þessum lögum og reglum, þar sem þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað. Tilgangur kynningarinnar er að kynna lögin fyrir félagsmönnum, meðal annars til þess að auðvelda höfundum framkvæmd við útgáfu reikninga, útreiknings skattstofns og skil á skatti og staðgreiðslu.

Kynningin verður almenns eðlis. Fjallað verður um tildrög breytinganna og almenn framkvæmd í ljósi skattlagningar höfundaréttartekna.

 

Guðbjörg Þorsteinsdóttir

Guðbjörg Þorsteinsdóttir, skattalögfræðingur og meðeigandi hjá Deloitte, mun kynna lögin og fjalla um skilyrði skattlagningarinnar og framkvæmdina. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur Myndstefs og Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, framkvæmdastjóri Myndstefs, munu stilla upp nokkrum raunhæfum dæmum í samræmi við lögin. Einnig verður tekið við spurningum úr sal.

Kynningin fer fram fimmtudaginn 21. október og hefst kl 16:00, í salnum ‘Fenjarými’ í Grósku í Vatnsmýrinni (Bjarkargötu 1, 102 Reykjavík).

Kynningin er opin öllum og ókeypis, en við biðjum áhugasama vinsamlegast um að merkja sig ‘attending’ á Facebook viðburði kynningarinnar HÉR hyggjast þeir mæta, eða láta skrifstofu Myndstefs vita með öðrum hætti, svo hægt sé að halda utan um áætlaðan fjölda gesta.

Lögin eru aðgengileg hér: https://www.althingi.is/altext/149/s/2072.html
Reglugerðin er aðgengileg hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/fjarmala–og-efnahagsraduneyti/nr/1245-2019

Nýlegar fréttir