- Fréttir

Þann 2. febrúar 2024 undirrituðu Myndstef og Listasafn Reykjanesbæjar samning um eintakagerð, stafræna birtingu og aðgengi að afritum af safnkosti safnsins. Um er að ræða svokallaðan samningskvaðasamning sem heimilar birtingu á höfundavörðum verkum í safneign á rafrænum miðlum safnsins. Með samningum sem þessum er ætlunin að bæta aðgengi að menningararfi þjóðarinnar til kynningar, menntunar og fræðslu til skóla og almennings á grundvelli menningarstefnu stjórnvalda og safnalaga nr. 141/2011.

Myndstef fagnar bættu aðgengi almennings að verkum safnsins og óskar Listasafni Reykjanesbæjar til hamingju með að vera komin í hóp sístækkandi hóps safna sem undirritað hafa slíka samninga um rafrænt aðgengi.

Helga Arnbjörg Pálsdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir stjórnarformaður Myndstefs og Helga Þórsdóttir forstöðukona Listasafns Reykjanesbæjar.

Guðrún Erla Geirsdóttir stjórnarformaður Myndstefs og Helga Þórsdóttir forstöðukona Listasafns Reykjanesbæjar skrifuðu undir samninginn, með þeim á myndinni er Helga Arnbjörg Pálsdóttir sérfræðingur á Listasafni Reykjanesbæjar.

Nýlegar fréttir
Skólavörðustígur 12