- Fréttir

Vera Sveinbjörnsdóttir, Ragnar Th. Sigurðsson og Kristján Steingrímur Jónsson, safnstjóri Listasafns HÍ.

Þann 22. febrúar 2023 undirrituðu Myndstef og Listasafn Háskóla Íslands samning um eintakagerð, stafræna birtingu og aðgengi að afritum af safnkosti safnsins. Um er að ræða svokallaðan samningskvaðasamning sem heimilar birtingu á höfundavörðum verkum í safneign á rafrænum miðlum safnsins. Með samningum sem þessum er ætlunin að bæta aðgengi að menningararfi þjóðarinnar til kynningar, menntunar og fræðslu til skóla og almennings á grundvelli menningarstefnu stjórnvalda og safnalaga nr. 141/2011.

Myndstef fagnar bættu aðgengi almennings að verkum safnsins og óskar Listasafni HÍ til hamingju með að vera komin í hóp sístækkandi hóps safna sem undirritað hafa slíka samninga um rafrænt aðgengi.

Nýlegar fréttir
Listasafn Reykjavíkur