- Fréttir

Myndstef vekur athygli á að tekið er á móti nýskráningum vegna greiðsla vegna útlána á bókasöfnum á árinu 2020 til 31. janúar á vefsíðu Rithöfundasambandsins, hér.

Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008.

Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu Rithöfundasambandsins (hlekkur hér að ofan).

Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur. Ný verk eru sjálfkrafa færð á skrá höfundar.

Nýlegar fréttir