Fréttin hefur verið uppfærð með staðsetningu fundar.
Aðalfundur Myndstefs fer fram fimmtudaginn 3. júní og hefst stundvíslega kl 17:00. Fundurinn fer fram í SÍM salnum, Hafnarstræti 16.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
- Afgreiðsla ársreikninga vegna ársins 2020
- Skýrsla stjórnar
- Hagsmunaskrá stjórnenda lögð fram
- Tilnefning stjórnar og varamanna
- Kosning löggilts endurskoðanda
- Umboð til stjórnar um ákvörðun styrkja á vegum Myndstefs
- Gjaldskrá Myndstefs
- Samþykktir Myndstefs
- Samstarfssamningar við aðildarfélög
- Önnur mál
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir sem eru fullgildir félagar samkvæmt skrám félagsins, en skrá þarf mætingu fyrir kl 12:00 á fundardegi. Skráning fer fram hér.
Athugið að stjórn og fulltrúaráð þarf ekki að skrá mætingu með þessum hætti.
Nýlegar fréttir