- Fréttir

Samsett mynd frá rafrænni styrkveitingu Myndstefs árið 2020.

Umsóknafrestur styrkja Myndstefs lauk kl 23:59 þann 17. ágúst.

Alls bárust 124 umsóknir um verkefnastyrk og 30 umsóknir um ferða-og menntunarstyrk. Sérstök úthlutunarnefnd sér um afgreiðslu styrkbeiðna og ákvörðun styrkveitinga. Í nefndinni sitja þrír aðilar og starfar hver nefnd í tvö ár. Í ár starfar áfram nefndin sem tilnefnd var í fyrra, en nefndarmeðlimir voru tilnefndir af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Ljósmyndarafélagi Íslands og Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík.

Stjórn Myndstefs ákveður heildarfjárhæð styrkja fyrir hverja úthlutun í samráði við löggiltan endurskoðanda samtakanna.

Í fyrra ákvað stjórn Myndstefs að hækka heildarfjárhæð verkefnastyrkja úr 8.000.000 kr í 12.750.000 kr og veita þannig í heildina 15.000.000 kr í beina styrki til myndhöfunda, þar sem 2.250.000 kr eru veittar í ferða-og menntunarstyrki. Hækkunin var gerð í ljósi aðstæðna í heiminum sökum heimsfaraldursins og að fordæmi annarra styrktarsjóða sem höfðu verið hækkaðir. Hækkunin átti að ná eingöngu til styrkúthlutunnar það árið og var ætluð til þess að styðja við bakið á myndhöfundum á þessum fordæmalausum og óljósum tímum. Ljóst er að áhrif faraldursins ríkir enn og tók stjórnin því ákörðun að veita aftur 15 milljónir kr í beina styrki til myndhöfunda á árinu 2021.

Allir umsækjendur verða látnir vita um niðurstöðu eftir að úthlutunarnefnd lýkur störfum.

Nýlegar fréttir