- Fréttir

Í gær, 16. febrúar 2022, var nýr samningur við RÚV undirritaður, en Myndstef og RÚV gerðu fyrst með sér samning árið 1996 vegna notkunnar höfundavarinna myndverka við dagskrárgerð í sjónvarpi Ríkisútvarpsins. Samningurinn hafði lítið sem ekkert breyst frá árinu 1999 og því tímabært að uppfæra hann.

Þessi nýji samningur er ólíkari en eldri samningar að því leyti að um er að ræða svokallaðan samningskvaðasamning, sem Myndstef hefur heimild til að gera þar sem samtökin hafa viðurkenningu Menningar-og viðskiptaráðuneytis (áður: Mennta-og menningarmálaráðuneyti). Samningskvaðasamningur er sérstök tegund af myndbirtingarleyfi þar sem notandi fær eitt heildarleyfi til að birta verk eftir marga höfunda og þarf því ekki að sækja um leyfi fyrir hvern höfund. Höfundum er þó ávallt heimilt að taka ekki þátt í heildarsamningum og þurfa þeir að tilkynna það til Myndstefs. Í þeim tilvikum þarf að semja sérstaklega við þann höfund.
Frekari upplýsingar um samningskvaðasamninga, m.a. úthlutanir fjármuna í gegnum slíka samninga, er að finna á heimasíðu Myndstefs, hér.

Myndstef fagnar þessum tímamótasamningi og fær RÚV þakkir fyrir gott samstarf. Það er ánægjulegt að sjá í verki að RÚV sé annt um að nota íslensk myndverk en vilji að sama skapi gera það löglega og greiða fyrir notin.

Hér má sjá myndir af undirrituninni þar sem Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, og Ragnar Th. Sigurðsson, stjórnarformaður Myndstefs, undirrita samninginn. (© Myndstef/RTS)

Nýlegar fréttir