Aðalfundur Myndstefs verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl 17 í The Cinema, Geirsgötu 7b, 101 Reykjavík.
Skráðir félagsmenn Myndstefs hafa rétt á að mæta á aðalfund, en þeir sem eru hvorki í stjórn né fulltrúaráði þurfa að skrá mætingu fyrir kl 12 á fundardegi. Ef vafi leikur á um hvort aðili sé skráður félagsmaður er hægt að hafa samband við skrifstofu Myndstefs á myndstef@myndstef.is eða í síma 562-7711. Opnunartími skrifstofu er milli kl 10 og 14 alla virka daga.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- Afgreiðsla ársreikninga vegna árins 2018
- Skýrsla stjórnar
- Hagsmunaskrá stjórnenda lögð fram
- Tilnefning stjórnar og varamanna.
- Kosning félagslegs skoðunarmanns og löggilts endurskoðanda
- Umboð til stjórnar um ákvörðun styrkja á vegum Myndstefs
- Samþykktir Myndstefs
- Gjaldskrá Myndstefs
- Önnur mál