- Fréttir

 

Myndstef vekur athygli á árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot verka á bókasöfnum, en henni er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, á grundvelli útlána og afnota verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun þessa gilda lög um bókmenntir nr. 91/2007.

Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa myndhöfundar, höfundar og aðrir rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu Rithöfundasambands Íslands, https://rsi.is/bokasafnagreidslur/umsoknareydublad/

Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2023.

Um þessa úthlutun er hægt að lesa nánar á vef Rithöfundasambands Íslands.

Nýlegar færslur