Myndstef vekur athygli á því að nýskráning vegna greiðslna vegna útlána á bókasöfnum stendur nú yfir á vef Rithöfundasmabandi Íslands, en Myndhöfundar eiga þar m.a. rétt á greiðslum. Myndstef hvetur sérstaklega myndhöfunda myndríkra bóka að skrá sig, hafi þeir ekki gert það nú þegar.
Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008.
Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu: https://rsi.is/bokasafnagreidslur/umsoknareydublad/
Umsóknarfrestur er til 31. janúar
Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur. Ný verk eru sjálfkrafa færð á skrá höfundar.