In Fréttir

ATHUGIÐ: Umsóknafrestur er frá 12. júní til og með 

 miðvikudags 12. ágúst 2026.

 

Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér úthlutunarreglur vel
áður en sótt er um úthlutun.

 

Sérstök athygli er vakin á því að ekki er hægt að breyta umsókn eftir að hún hefur verið send inn og ekki er hægt að bæta við, fjarlægja eða breyta fylgigögnum eftir að umsókn hefur verið send inn.

Ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur.

 

 

Úthlutun úr höfundasjóði Myndstefs fyrir myndhöfunda

Allir myndhöfundar geta sótt um úthlutun, en athugið að ekki er tekið við umsóknum frá þeim sem hafa hlotið framlag árið áður. Vakin er athygli á að við mat á umsókn um úthlutun gildir starfsferill 70% og verkefni 30%.

 

Ferða-, menntunar- og vinnustofustyrkir fyrir meðlimi Myndstefs

Aðeins er tekið við umsóknum frá meðlimum Myndstefs. Skráðu þig hér.

 

Recommended Posts