- Fréttir

Það er okkur einstök ánægja að tilkynna að Myndstef hefur nú flutt skrifstofu sína að Hafnarstræti 5, 3. hæð. Opnunartími skrifstofu og símatími er áfram 12-15 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, en mælt er með því að bóka tíma fyrir fundi með því að senda tölvupóst á myndstef@myndstef.is.

Við vinnum að því að koma okkur fyrir en í húsnæðinu er prýðisgóð aðstaða fyrir fundi og fyrirlestra, þar sem við höfum aðgang að allri aðstöðu hjá Reykjavíkurakademíunni.

Það er einnig gaman að segja frá því að á brúnni yfir Hafnarstrætið er svo von á kaffibar á næstunni.

Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Hafnarstræti 5

 

Nýlegar fréttir