Athugið!
Aðalfundur Myndstefs verður haldinn 29. apríl 2026, að Hafnarstræti 5, 3. hæð, kl. 16.30-18.00.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundastörf. Formlegt fundarboð og dagskrá verða send síðar.
Jafnframt er auglýst eftir framboði til formanns stjórnar næstu þrjú árin:
Framboðsfrestur er til 8. apríl kl 16:00.
Sitjandi formaður stjórnar, Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir, sem hefur verið formaður sl. 3 ár, gefur kost á sér til áframhaldandi setu sem stjórnarformaður Myndstefs.
Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu MYNDSTEFS eigi síðar en miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 16:00.
Framboði til formanns skal fylgja stutt bréf (hámark 1 bls), með upplýsingum um frambjóðanda og helstu málefnum til birtingar á vef Myndstef, ásamt mynd.
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hringja eða senda tölvupóst til Myndstefs.
