In Fréttir

Heil og sæl,

Aðalfundur Myndstefs verður haldinn 29. apríl 2026, að Hafnarstræti 5, 3. hæð, kl. 16.30-18.00. 

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir sem eru fullgildir félagar samkvæmt skrám félagsins.

Athugið að hvert aðildarfélag skal tilkynna Myndstef skriflega, fyrir aðalfund, hver fari með umboð þeirra og atkvæðisrétt, ef annar en formaður.

Af praktískum ástæðum óska ég eftir að félagar tilkynni um mætingu með því að senda tölvupóst á myndstef@myndstef.is og til að fá fundargögn send, eigi síðar en 26. apríl nk. 

 

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

1.      Kosning fundarstjóra og fundarritara

2.      Stjórnarformaður flytur skýrslu stjórnar.

3.      Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.

4.     Úrslit kosningar formanns.

5.      Tilnefningar stjórnarmanna og varamanna kynntar.

6.      Samþykki stjórnarlauna.

7.      Stefnur skv. umsýslulögum.

7.1.      Almenna stefnu um úthlutun réttindagreiðslna til rétthafa.

7.2.      Almenna stefnu um notkun óráðstafanlegra fjárhæða.

7.3.      Almenna fjárfestingarstefnu með tilliti til réttindatekna og arðs af fjárfestingu þeirra.

7.4.      Almenna stefnu um frádrátt frá réttindatekjum og arðs af fjárfestingu þeirra.

7.5.      Notkun óráðstafanlegra fjárhæða.

7.6.      Áhættustýringarstefnu.

7.7.      Samþykki fyrir hvers konar kaupum, sölu eða tryggingarrétti fastafjármuna.

7.8.      Samþykki um samruna og bandalög, stofnun dótturfélaga og kaup á öðrum einingum eða hlutum eða réttindum í öðrum einingum.

7.9.      Samþykki fyrir lántöku, lánveitingum eða útgáfu lánatrygginga.

8.      Tilnefningu og uppsögn löggilts endurskoðenda.

9.      Samþykki árlegrar gagnsæisskýrslu.

10.  Önnur mál.

 

Hlakka til að sjá sem flest.

Bestu kveðjur,

Vera Sveinbjörnsdóttir

Framkvæmdastjóri/CEO

Myndstef – Myndhöfundasamtök Íslands / The Icelandic Visual Art Copyright Association

Hafnarstræti 5, 3.h.

101 Reykjavík

Sími/Tel: +354 562 7711

myndstef@myndstef.is

www.myndstef.is

Recommended Posts