In Fréttir

Myndstef hefur fengið liðsauka á skrifstofuna en Sunna Axels hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Myndstef og hóf störf þann 18. júní 2025.

Sunna hefur lokið MS gráðu í verkefnastjórnun, BA námi í japönsku máli og menningu með styrk frá japanska ríkinu og fornáminu í Myndlistarskólanum. Sunna hefur verið verkefnastjóri hjá Sequences myndlistarhátíð, Listval gallerí, Universal Thirst leturgerðarfyrirtæki, framleiðandi og yfirverkefnastjóri RIFF kvikmyndahátíðar, rekstrarstjóri Hinsegin Daga og stofnaði Flæði gallerí á sínum tíma. Sunna hefur einnig unnið fyrir KÍM bæði í starfsnámi og sem skálavörður á Feneyjartvíæringnum. Þá hefur hún komið reglulega fram undir dj-nafninu SAKANA síðast áratuginn og spilar þá helst japanska tónlist í bland við kynsegin tóna og aðra danstónlist.

Við bjóðum Sunnu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.

Sunna Axels.

Mynd: Kristín S. Pétursdóttir

Recent Posts