Höfundasjóður Myndstefs
Opnað er fyrir umsóknir úr höfundasjóði Myndstefs í kjölfar aðalfundar ár hvert, að jafnaði er opnið fyrir umsóknir í júní fram til ágúst.
Umsóknafrestur 2025 var til og með 21. ágúst 2025.
Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér úthlutunarreglur vel áður en sótt er um styrk. Ef umsókn mætir ekki skilyrðum úthlutunarregla eða ef umsókn er ekki fyllt út skv. leiðbeiningum og reglum áskilur úthlutunarnefndin sér rétt til að hafna henni.
Sérstök athygli er vakin á því að ekki er hægt að breyta umsókn eftir að hún hefur verið send inn og ekki er hægt að bæta við, fjarlægja eða breyta fylgigögnum eftir að umsókn hefur verið send inn.