Æðstu stjórnendur Myndstefs er stjórn samtakanna.
Eftirfarandi aðilar Myndstefs sitja í stjórn Myndstefs:
Guðmundur Skúli Viðarsson, ljósmyndari
Guðrún Erla Geirsdóttir – Gerla, myndhöfundur, sem jafnframt er formaður stjórnar.*
Logi Bjarnason, myndhöggvari/myndlistarmaður
Pétur Thomsen, ljósmyndari og myndlistarmaður
Steinunn Hrólfsdóttir, fatahönnuður
* Formaður stjórnar er kjörinn á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund, eins og tilgreint er í samþykktum Myndstefs.
Hér má finna dagskrár stjórnarfunda Myndstefs s.l. árs:
Stjórnarfundur 13. maí 2025
- Yfirferð og undirritun ársreiknings
- Aðalfundur 27. maí nk.
- Önnur mál
Stjórnarfundur 27. febrúar 2025
- Samþykkt síðustu fundargerða.
- Endurskoðun í mars – til upplýsinga
- Framvinda nýs tölvukerfis – til upplýsinga
- Rennur í sjóð – til ákvörðunar og undirritunar
- Muggur – beiðni frá SÍM um hækkun á framlagi úr 1 m.kr. í 1,5 m.kr. – til ákvörðunar.
- Erindi frá FLB – til ákvörðunar.
- Ársáætlun og tillaga að fundaáætlun vorsins
- Tímasetning og fyrirkomulag aðalfundar 2025 – til umræðu
- Húsnæðismálin – tillaga um nýtt húsnæði.
- Önnur mál
-
- Nafnabreyting félagsins í samræmi við ákvörðun aðalfundar (undirritun stjórnar á eyðublað RSK)
- Fölsunarmálið – verk á vef Myndstefs.
- Beiðni um notkun verka í þáttaseríu, á leiðinni (snýr að verkum úr stóra fölsunarmálinu).
Stjórnarfundur 5. desember 2024
- Umræður um punktakerfi (frestað)
- Önnur mál
- Flutningar
- Formaður erlendis í janúar
Auka-aðalfundur 5. desember 2024
Á auka-aðalfundi var einn liður til umræðu, sem vísað hafði verið til auka-aðalfundar á aðalfundi í júní:
- Ákvæði nýrra samþykkta er lýtur að kosningu á aðalfundi til umræðu og ákvörðunar (9. gr.).
- Önnur mál
1. Ný 9. gr. samþykkta Myndstefs (kosningar á aðalfundi)
Dagskrá fundarins var eingöngu að ræða 9. gr. samþykkta Myndstefs, en á aðalfundi Myndstefs voru kynnt drög að nýjum samþykktum fyrir félagið og þau samþykkt að undanskyldu ákvæði er varðar kosningu á aðalfundi. Var framkvæmdastjóra Myndstefs falið að koma með tillögu að uppfærðu ákvæði, sem send var út með fundarboði.
Framkvæmdastjóri Myndstefs fór stuttlega yfir aðdraganda á breytingum að samþykktum Myndstefs og ástæður þess sem að gerðar voru breytingar á samþykktum.
Kynnti framkvæmdastjóri því næst tillögu að nýju ákvæði og bar saman við hið eldra. Fór hún jafnframt yfir að gagna hefði verið aflað og farið yfir samþykktir fjölmargra systurfélaga, erlendis og hérlendis, til samanburðar. Þá voru samþykktirnar rýndar með tilliti til laga um sameiginlega umsýslu höfundaréttar, sem og Evróputilskipunar sem lögin byggja á.
Líflegar umræður voru um aðild að Myndstef undir umsýslulögum. FLB var andsnúið því að einstök aðildarfélög ættu að hafa aukið atkvæðavægi, á grundvelli fjölda félagsmanna. Var lögð fram breytingartillaga á ákvæðinu um að tekin væri út setning um aukið aðildarvægi aðildarfélaga og að því loknu var kosið um breytinguna. Var hún samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta.
2. Önnur mál
Tekin voru upp önnur mál, en framkvæmdastjóri upplýsti um fyrirhugaða flutninga og vinnu við nýtt tölvukerfi. Þá var upplýst um að nýtt fagráð Myndstefs yrði boðað saman á nýju ári. Loks var nefnt að stefnt yrði að aðalfundi fyrr en áður hefur tíðkast, eigi síðar en í maí.
Stjórnarfundur 17. október 2024
- Fundargerð síðasta fundar
- Tímasetning fyrir auka-aðalfund
- Myndverk í þáttaseríu – beiðni um tilboð
- Félög til almannaheilla og skattaafsláttur: MVF hvetur menningartengd félög til þess að skoða þennan möguleika.
- Önnur mál
- Viðurkenning ráðuneytis hefur verið endurnýjuð .
Stjórnarfundur 19. september 2024
- Fundargerðir síðustu funda
- Úthlutun úr höfundasjóði
- Samantekt formanns úthlutunarefndar
- Dagsetning vegna úthlutunar / styrkveitingar til umræði
- Fylgiskjal til upplýsinga um tekjur og úthlutun vegna ársins 2023
- Umræða um punktakerfi
- Fylgiréttargreiðslur – kvartanir frá þremur erfingjahópum
- Önnur mál
Stjórnarfundur 15. ágúst 2024
- Úthlutun
- Eftirfylgni eftir aðalfund (samþykktir / úthlutunarreglur)
- Greiðsla til laganefndar vegna vinnu við samþykktir
- Húsnæðismál Myndstefs
- Norrænn fundur 28.-29. ágúst í Reykjavík
- Málskostnaðarbeiðni
- Fundartímar haustsins
- Önnur mál
- Nýtt tölvukerfi
Stjórnarfundur 13. júní 2024
- Úthlutun – umsóknartímabil, úthlutunarreglur og eyðublað, sem og tilnefningar í úthlutunarnefnd.
- Erindi frá BH.
- Skipun ráðherra í höfundarréttarnefnd
- Eftirfylgni eftir aðalfund
- Punktakerfi
- Önnur mál
- Muggur
Aðalfundur 12. júní 2024
Guðrún Erla Geirsdóttir, Gerla, stjórnarformaður Myndstefs bauð gesti velkomna, og lagði til að Knútur Bruun, heiðursfélagi Myndstefs og fyrrum stjórnarformaður, yrði fundarstjóri fundarins og var það samþykkt. Vera var kosin fundarritari.
Knútur ávarpaði fundargesti og ræddi stuttlega svokallað Visningsvederlag, samningur við ríkið í Svíþjóð, fyrir sýningu fyrir endurgjald fyrir afnot af myndverkum, í sendiráðum og opinberum byggingum og hvatti til þess að Myndstef skoði hvernig þessum málum er háttað á Norðurlöndunum og reyni að ná fram sambærilegu samkomulagi á íslandi.
Að því búnu voru tekin fyrir mál á dagskrá.
- Stjórnarformaður flytur skýrslu stjórnar.
Gerla flutti skýrslu stjórnar Myndstefs og fór yfir samantekt um málefni og starfsemi stjórnar síðastliðið ár. Skýrsla stjórnar, auk ársreiknings og gagnsæisskýrslu, fylgja með fundargerð þessari og verða skjölin birt á vefsíðu Myndstefs að fundi loknum.
- 2. Gagnsæisskýrsla, ásamt endurskoðuðum reikningum, kynnt og lögð til samþykktar:
Vera Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Myndstefs, kynnti gagnsæisskýrslu sem kemur út í annað skipti fyrir Myndstef.
Framkvæmdastjóri Myndstefs lagði fram og fór yfir endurskoðaðan ársreikning samtakanna vegna ársins 2023 og lykiltölur. Ársreikningur var samþykktur af endurskoðanda án fyrirvara. Fjárhagsstaða samtakanna er stöðug og endurskoðandi taldi ljóst að sýnt hefði verið gott aðhald í rekstri samtakanna á árinu 2023.
Vera fór einnig yfir hvernig umsýslukostnaður endurspeglast í ársreikningi, sem og metinn kostnað vegna menningarlegrar-, félagslegrar og menntunartengdrar þjónustu samtakanna eins og heimilt er skv. umsýslulögum, reiknast umsýslukostnaður um 37,5%. Myndstef leggur mikið upp úr því að vinna að því að lágmarka umsýslukostnað, eins og kostur er.
Fundastjóri bar skýrslu og ársreikning undir fundinn til samþykktar.
Skýrsla var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum
Ársreikningur var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
Að því búnu fór Harpa Fönn yfir stefnur sem áskilið er í umsýslulögum að umsýslustofnanir setji sér, en þær eru:
2.1 Almenn stefna um úthlutun réttindagreiðslna til rétthafa.
2.2. Almenn stefna um notkun óráðstafanlegra fjárhæða.
2.3. Almenn fjárfestingarstefna með tilliti til réttindatekna og arðs af fjárfestingu þeirra.
2.4. Almenn stefna um frádrátt frá réttindatekjum og arðs af fjárfestingu þeirra.
2.5. Notkun óráðstafanlegra fjárhæða.
2.6. Áhættustýringarstefna
2.7. Samþykki fyrir hvers konar kaupum, sölu eða tryggingarrétti fastafjármuna
2.8. Samþykki um samruna og bandalög, stofnun dótturfélaga og kaup á öðrum einingum eða hlutum eða réttindum í öðrum einingum
2.9. Samþykki fyrir lántöku, lánveitingum eða útgáfu lánatrygginga.
Umræður fóru fram um stefnurnar og umsýslukostnað. Sameiginlegum umsýslustofnum ekki heimilt að ráðstafa fé í öðrum tilgangi en að úthluta til rétthafa. Umsýslukostnaður er talsvert hár hjá Myndstef, þrátt fyrir gott aðhald á rekstri, og það væri óskandi að rekstrartekjur væru hærri, sem myndi þá veita meira svigrúm til að sinna grunnþörfum starfseminnar betur auk þeirrar þjónustu sem Myndstef veitir á sviði félagslegarar-, menningarlegrar- og menntunartengdrar þjónustu, s.s. með fræðslu og ráðgjöf.
Upp kom sú tillaga að hugsanlega gæti Myndstef verið hrein umsýslustofnun, í þeim tilgangi að spara kostnað. Fram komu ábendingar um að ráðgefandi hlutverk Myndstefs sé afar mikilvægt fyrir myndhöfunda. SÍM telur hlutverk Myndstefs afar mikilvægt og “værum úti í móa” ef Myndstef hefði ekki komið til. “Við erum að vinna til framtíðar. Myndmiðlun er í gífurlegum vexti og stórar ógnir framundan. Gífurlega mikilvægt að minnka styrki, frekar en að draga úr þjónustunni.” Skoraði fulltrúi SÍM á Myndstef að tryggja að þessi þjónsta og ráðgjöf sérstaklega, verði áfram til staðar.
Knútur tók undir það og hvatti Myndstef til að passa áfram upp á litlu höfundana.
Stefnur voru bornar undir fundinn til samþykktar og voru þær samþykktir með öllum greiddum atkvæðum.
Framkvæmdastjóri upplýsti um hagsmunaskrá stjórnenda. Ekki eru til staðar neinir hagsmunaárekstrar.
- Tilnefning löggilts endurskoðenda
Lagt var til að núverandi endurskoðandi yrði áfram tilnefndur til starfa fyrir samtökin, enda var á síðasta ári leitað tilboða og reyndist núverandi endurskoðandi hagkvæmastur. Var tillagan borin til samþykktar og samþykkt samhljóða.
- Kosning fulltrúaráðs og tilnefningSÍM á fulltrúum í stjórn lögð fram.
Upplýst um kosningu fulltrúaráðs, þar sem Logi Bjarnason var kosinn til áframhaldandi stjórnarsetu fyrir fulltrúaráð og tilnefningu SÍM á fulltrúa sínum í stjórn, en SÍM tilnefndi Gerlu, Guðrúnu Erlu Geirsdóttir, til áframhaldandi stjórnarsetu.
- Tillaga um nafnabreytingu á félaginu lögð fram til samþykktar
Lagt var til að stuttnefnið Myndstef yrði gert að aðalheiti félagsins. Nokkrar umræður sköpuðust um heiti félagsins og mikilvægi þess að halda í heiti þess. Tillaga laganefndar er að heitið Myndstef verði formgert með því að breyta heitinu í “Myndstef- Myndhöfundasjóður Íslands”.
Rósa leggur til að sú tillaga sé lögð undir fundinn til samþykktar:
Myndstef skeytt framan við heiti samtakanna og samtökin heiti hér eftir:
Myndstef – Myndhöfundasjóður Íslands.
Var það samþykkt með meirihluta atkvæða.
- Breytingar á samþykktumMyndstefs lagðar fram til kynningar og ákvörðunar.
Framkvæmdastjóri kynnti tillögur að nýjum samþykktum sem unnar voru af sérstakri laganefnd, en mikil og vönduð vinna fór fram við að endurskoða samþykktirnar og á laganefnd mikinn heiður skilið fyrir góð og vel unnin störf. Leitast var við að tryggja að samþykktirnar endurspegli sem best raunverulega starfsemi og að þær séu fyllilega í samræmi við lög og reglur. Var vakin sérstaklega athygli á tilteknum atriðum sem fela í sér umtalsverðar breytingar frá því sem áður var, þar á meðal ákvæði um aðild, ákvæði um heimild til setu og atkvæðisréttar á aðalfundi, skipan stjórnar og breytingum á fagráði (sem áður var fulltrúaráð).
Líflegar umræður fóru fram um samþykktir. Vakti framkvæmdastjóri athygli á að þrátt fyrir að mikil og vönduð vinna hefði farið fram, mætti þó enn útfæra nokkur atriði betur og því væri ekki aðkallandi að samþykkja þær óbreyttar. Fundarstjóri hvatti til þess að fundurinn kæmist að niðurstöðu um samþykktir.
Niðurstaða fundarins var á þá leið að tillögur að samþykktum voru samþykktar, með þeirri breytingartillögu þó að undanskilið var ákvæði varðandi atkvæðagreiðslur og miðast við núgildandi ákvæði hvað það varðar. Framkvæmdastjóra var falið að uppfæra samþykktir með hliðsjón af því og koma fram með tillögu um það.
Ákveðið var að taka skuli fyrir breytingar á atkvæðavægi á auka-aðalfundi í haust, sem stjórn Myndstefs boðar.
- Drög að nýjum úthlutunarreglum úr Höfundasjóði Myndstefs lagðar fram til samþykktar
Drög að nýjum úthlutunarreglum úr höfundasjóði Myndstefs voru lagðar fram til samþykktar með smávægilegum breytingum.
Fyrir fundinn höfðu borist tillögur frá einum fundarmanni og var þess óskað að þær verði sendar stjórn til athugunar.
- Verðskrá Myndstefs til umræðu og ákvörðunar
Samkvæmt fyrri samþykktum ber að leggja verðskrá Myndstefs fyrir stjórn. Tillaga stjórnar er að hækka verðskrá miðað við vísitöluhækkun, en að stjórn setji á fót sérstakan hóp til þess að yfirfara og rýna verðskránna.
Var rætt um verðskránna og var lögð fram beiðni frá fundarmanni, formanni Ljósmyndamiðstöðvar, sem óskaði eftir að verðskrá sé ekki birt opinberlega, aðeins fyrir félagsfólk.
Gerla með ábendingu um að sé einfaldara að verðskráin sé opin, hún sé til viðmiðunar.
Pétur Thomsen benti á að mikilvægt sé að huga að því fyrir hvern er Myndstef að vinna.
Pétur bendir á að óþarfi sé að birta verðskrá opinberlega,
Knútur benti á að gjaldskrá er aðeins fyrir endurnot, það sé alveg skýrt af verðskránni. Knútur benti jafnframt á að allir myndhöfundar mega banna notkun á eigin verkum.
Formaður Ljósmyndamiðstöðvar benti á dæmi um misnotkun, og að verðskráin hafi komið sér í vanda, þar sem kaupendur verka vísi til hennar og vilji greiða samkvæmt henni.
Tillaga að formaður spyrjist fyrir hjá ráðuneytinu, hvort megi birta verðskrá. Lögfræðingur Myndstefs kom með aukatillögu um að tekinn yrði út liður um auglýsingar, en verðskrá birt að öðru leyti. Samþykkti fundurinn að liður um auglýsingar sé tekinn út af netinu. Jafnframt var ákveðið að í framhaldi verði ráðist í endurskoðun á verðskrá og fyrirkomulagi hennar.
9. Önnur mál.
Gerla færði lögfræðingi samtakanna Hörpu Fönn kveðjugjöf, þar sem Harpa hefur lokið störfum hjá Myndstef.
Ekki voru tekin fyrir önnur mál. Fundi slitið kl. 19.30.
Stjórnarfundur 27. maí 2024
- Vinnufundur stjórnar um samþykktir
Stjórnarfundur 8. maí 2024
- Fundargerð síðasta fundar
- Höfundar sem renna í sjóð
- Rétthafasjóður / Höfundasjóður
- Fyrirkomulag úthlutunar úr höfundasjóði Myndstefs
- Skipun nýrrar úthlutunarnefndar
- Fyrirkomulag úthlutunar
- Bókasafnssjóður – komandi úthlutun.
- Samningur við menningar- og viðskiptaráðuneyti og samstarf við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs – til umræðu
- Önnur mál
- Sumarlokun
- Birting verka á vef – erindi
- Uppgjör til FLB – til upplýsinga
- IHM kapall – til upplýsinga
- Aðild að Myndstefi
- Tillögur laganefndar um breytingar á samþykktum
Stjórnarfundur 13. mars 2024
- Fundargerð síðasta fundar
- Bókasafnssjóður – niðurstaða vegna kvörtunar til Umboðsmanns Alþingis
- FLB
- Fjölís
- Tilnefning í höfundaréttarnefnd
- Endurskoðun og aðalfundur
- Önnur mál
Stjórnarfundur 13. febrúar 2024
-
- Fundargerð síðasta fundar
- Ósk um að Myndstef gerist aðildarfélag að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni / Edduverðlaunin
- Umsókn um aðild að Myndstefi – ÍKS
- IHM – Kapalgeirinn – sáttameðferð
- Vinna laganefndar við nýjar samþykktir
- Auka-aðalfundur og fulltrúaráðsfundur
- Önnur mál
Stjórnarfundur 17. janúar 2024
- Fundargerð síðasta fundar
- Vinna laganefndar við nýjar samþykktir – til uppl.
- Myndefni í námsefni
- Samningur við Menntamálastofnun
- Samningur við Háskólaútgáfuna
- Aðrir háskólar, notkun og samningar
- Fundaáætlun vorsins – til umræðu og ákvörðunar
- Opnunartími skrifstofu – tillaga til umræðu og ákvörðunar
- Önnur mál
Stjórnarfundur 7. desember 2023
- Fundargerð síðasta fundar.
- Endursala í galleríum.
- Fjölís – tímarit.is
- Styrkúthlutun og ný úthlutunarnefnd á komandi ári
- Eftirfylgni eftir aðalfund.
- Auka-aðalfundur og vinna laganefndar
- Tilboð í endurskoðun
- Stefna um fjarvinnu á skrifstofu Myndstefs
- Jólalokun skrifstofu og næsti stjórnarfundur
- Önnur mál
Stjórnarfundur 8. nóvember 2023
- Fundargerð síðasta fundar.
- Fjölís og timarit.is
- Styrkúthlutun
- Endursala í galleríum.
- Staða ýmissa mála:
- Laganefnd
- FLB
- Næsti stjórnarfundur
- Umsögn um frumvarp til laga um brottfall laga um heiðurslaun listamanna
- Önnur mál
Stjórnarfundur 11. október 2023
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Dimmalimm – endurútgáfa í breyttu formi.
3. Beiðni frá Glassriver
4. Safnasamningar – lágmarksfjárhæðir.
5. Fjölís – IFFRO aðalfundur í október.
6. Varasjóður Myndstefs og réttindaumsýsla Myndstefs.
7. Laganefnd um samþykktir Myndstefs.
8. Staða ýmissa mála á skrifstofu
9. Önnur mál
Stjórnarfundur 13. september 2023
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Bókasafnssjóður
a. tilnefning í úthlutunarnefnd
b. kvörtun til Umboðsmanns Alþingis
3. IHM
a. IHM Kapall – (greinargerð og sáttaferli )
b. IHM stjórnarskipti
4. Fjölís
a. IFFRO aðalfundur í október
b. FJÖLÍS – tilnefning til stjórnar FJÖLÍS
5. Starfsáætlun vetrarins
a. Rétthafasjóður Myndstefs – styrkúthlutanir
b. Framtíðarstef
c. Eftirfylgni eftir aðalfund
i. Aðild Ljósmyndamiðstöðvar að Myndstefi
ii. Stefnumótun
iii. Laganefnd endurskoði samþykktir
iv. Fjöldi úthlutana á ári og aðferðarfræði við úthlutun.
v. Tilboð í endurskoðun
vi. Auka-aðalfundur
6. Málþing um gervigreind 29. sept.
7. Norrænn fundur í Stokkhólmi í ágúst 2023
a. Norrænn fundur á Íslandi í lok sumars 2024.
8. Önnur mál
a. FLB – Félag leikmynda- og búningahönnuða
b. Kynningu fyrir stjórn um höfundarétt
c. Næsti fundur
Stjórnarfundur 20. júní 2023
1. Fundargerð síðustu funda.
2. Stjórn kýs sér formann
3. Fyrirkomulag styrkveitingar
4. Sumarlokun Myndstefs
5. Stefnuskjöl
6. Önnur mál
a. Fjölís
b. IHM
c. styrkbeiðni vegna dómsmáls
Stjórnarfundur 30. maí 2023
1. Erindi frá FLB
2. Aðalfundur Myndstefs, dagsetning fyrir aðalfund
3. Næsta styrkveiting og fjárhæð styrkveitingar.
4. Önnur mál.
Stjórnarfundur 10. maí 2023
1. Fundargerð síðasta fundar til samþykktar.
2. Timarit.is og Landsbókasafn
3. Borgarsögusafn
4. Fjölís
5. Undirbúningur fyrir aðalfund
6. IHM
7. Beiðni frá Rétti um að styrkja lögmannskostnað vegna SG
8. Önnur mál
Stjórnarfundur 19. apríl 2023
1. Fundargerð síðasta fundar til samþykktar.
2. Safnasamningar
3. Fundur með samtökum listasafna 13. apríl.
4. Undirbúningur fyrir aðalfund
a. Fulltrúaráð
b. Gagnsæisskýrsla
5. IHM – styrkveiting 28. mars 2023
6. Norrænt samstarf
7. Fjölís aðalfundur 4. apríl
8. Kvörtun til umboðsmanns Alþingis
9. Önnur mál
Stjórnarfundur 8. mars 2023
1. Fundargerð síðasta fundar til samþykktar.
2. Safnasamningar
a. Staða samningamála við Listasafn Reykjavíkur
b. Borgarsögusafn
3. Undirbúningur fyrir aðalfund
a. Fulltrúaráð
b. Dagsetning aðalfundar
c. Gagnsæisskýrsla
4. Varamenn í stjórn
5. Tillaga til þingsályktunar um myndlistarstefnu til 2023.
6. IHM – aukastyrkveiting og umsóknarferli
7. Önnur mál
Stjórnarfundur 8. febrúar 2023
1. IHM – aukaúthlutun og umsóknarferli
2. Safnasamningar
a. Staða samningamála við Listasafn Reykjavíkur – sýningarskrár
b. Borgarsögusafn
c. Héraðsskjalasafn Akraness
d. Listasafn HÍ
e. Listasafn einars jónssonar
3. Forlagið og Margrét Tryggva.
4. Bjartur Veröld og Knútur Bruun
5. Erindi frá Huldu Hákon/Védísar – beiðni um styrk
6. Fyrirspurn um úthlutunarreglur og hugmyndir að uppfærðum úthlutunarreglum
7. IHM kapall
8. Önnur mál
Stjórnarfundur 11. janúar 2023
1. IHM – Afturvirk greiðsla & greiðslur sem haldið var eftir 2016-2021
2. Kvörtunar til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar bókasafnssjóðs, tilboð frá Áslaugu Björgvinsd. lögmanni
3. Staða samningamála við Listasafn Reykjavíkur
4. Erindi frá Huldu Hákon/Védísar – beiðni um styrk vegna máls
5. Fundur með MVF og viðurkenning MVF á Myndstef sem umsýslustofnun skv. umsýslulögum
a. Verkferlar vegna 16. gr. umsýslulaga
b. Umsýslukostnaður og 14. og 19. gr. umsýslulaga
c. Dagskrá aðalfundar Myndstefs, í samræmi við 5. mgr. 6. gr. umsýslulaga
d. Viðauki við lögum um umsýslu – gagnsæisskýrsla (ársreikningur og ársskýrsla) – innleiðing viðaukans og endurskoðun
6. Mannauðsmál, launajöfnuður, ráðningarsamningar og starfsskyldur.
7. Önnur mál

Eftirfarandi félög eiga aðild að Myndstef og sæti í fulltrúaráði þess:
Félag leikmynda- og búningahöfunda, FLB
Félag íslenskra kvikmyndatökustjóra
Grafía
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs (áður: Hönnunarmiðstöð Íslands), og eigendur þess;
Arkítektafélag Íslands, AÍ
Fatahönnunarfélag Íslands, FÍ
Félag húsgagna og innanhússarkitekta, FHI
Félag íslenskra gullsmiða, FÍG
Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA
Félag íslenskra teiknara, FÍT
Félag vöru- og iðnhönnuða
Leirlistafélagið (sem er einnig aðildarfélag SÍM)
Textílfélagið (sem er einnig aðildarfélag SÍM)
Samband íslenskra myndlistamanna, SÍM, og aðildarfélög þess;
Félag íslenskra samtímaljósmyndara, FÍSL
Félag íslenskra myndlistarmanna, FÍM
Íslensk grafík
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, MHR
Myndlistarfélagið
Leirlistafélagið (sem er einnig aðildarfélag Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs)
Textílfélagið (sem er einnig aðildarfélag Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs)
Upplýsingar um störf og skyldur stjórnar má finna í samþykktum Myndstefs, hér.