Myndstef – Myndhöfundarsjóður Íslands var stofnað árið 1991. Í stjórn samtakanna sitja fulltrúar aðildarfélaga Myndstefs. Framkvæmdastjóri Myndstefs er Vera Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur.
Tilgangur samtakanna er að fara með höfundarétt félagsmanna vegna opinberra endurbirtinga og sýninga á verkum þeirra, innheimta fylgiréttargjöld vegna endursölu á myndverkum og greiða til myndhöfunda og jafnframt stuðla að almennri höfundaréttargæslu á þessu sviði.
Myndstef starfar innan marka íslenskra höfundalaga nr. 73/1972, laga um sameiginlega umsýslu höfundaréttar nr. 88/2019, og reglugerðar nr. 486/2001. Einnig lúta samtökum alþjóðlegum lögum og reglum um höfundarétt, sbr. Bernarsáttmálinn og tilskipunum Evrópusambandsins er snúa að höfundarétti. Myndstef starfar samkvæmt viðurkenningu menningar- og viðskiptaráðuneytis frá 7. október 2024, en Myndstef hlaut fyrst viðurkenningu af hálfu menntamálaráðuneytis árið 1992 og hefur reglulega hlotið endurnýjun viðurkenningar síðan. Myndstef hefur samkvæmt viðurkenningu menningar- og viðskiptaráðuneytis heimild til þess að gera og hafa umsýslu með samningaskvaðasamningum fyrir hönd myndhöfunda á grundvelli 12. gr. b., 3. mgr. 14. gr. og 1.mgr. 23. gr. höfundalaga, og til umsýslu fylgiréttargjalds, skv. 5. mgr. 25. gr. b., sbr. 4. mgr. 26. gr. a. sömu laga, að því er varðar myndverk.
Samtökin starfa að öðru leyti í samræmi við samþykktir félagsins og setja sína eigin gjaldskrá af félagsmönnum samtakanna, á aðalfundi ár hvert. Myndstef er aðili að íslensku samtökunum IHM og Fjölís, ásamt Evrópsku höfundaréttarsamtökunum EVA. Myndstef er aðili að Höfundaréttarfélagi Íslands.
Aðilar að samtökunum eru félög; myndlistarmanna, ljósmyndara, teiknara, leikmynda- og búningahöfunda, arkitekta, hönnuða og ýmissa annarra stofnanna og einstaklinga sem fara með höfundarétt myndverka.
Myndstef innheimtir þóknun fyrir notkun á höfundarétti félagsmanna sinna og kemur henni til skila til þeirra. Samtökin eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Myndstef fylgist einnig með og leitast við að hafa áhrif á þróun laga og reglna svo og viðskiptahátta á þessu sviði og annast samningagerð félagsmanna við opinbera aðila og einkaaðila um höfundaréttarleg hagsmunamál félagsmanna. Myndstef veitir félagsmönnum sínum einnig lögfræðilega ráðgjöf varðandi höfundarétt og gerð samninga.
Allir meðlimir aðildarfélaga Myndstefs eru sjálfkrafa félagsmenn Myndstefs. Einnig er stór hluti félagsmanna Myndstefs með einstaklingsaðild utan aðildarfélaga. Frekari upplýsingar um aðild að Myndstef má nálgast hér. Skráðir félagsmenn á aðalfundi Myndstefs árið 2024 voru 3009 talsins.