24. ágúst 2010
Umóknarfrestur útrunninn
Myndstef þakkar fyrir þær umsóknir sem hafa borist um ferða- og menntunarstyrki og verkefnastyrki Myndstefs og mun skrifstofa samtakanna hafa samband við styrkhafa um leið og úrvinnsla úthlutunarnefndar liggur fyrir.
15. júní 2010
Verkefnastyrkir og ferða- og menntunarstyrkir Myndstefs 2010
Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna.
Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar.
Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 20. ágúst 2010. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki afgreiðslu. Tekið skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma.
Vakin er athygli á að þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki fyrir birtingu þessarar auglýsingar verða að endurnýja þær umsóknir.
Allar nánari upplýsingar gefa Þórhildur Laufey Sigurðardóttir og Kristín Magnúsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar. 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið myndstef@myndstef.is
Vakin er athygli á því að Myndstef áskilur sér rétt til að birta á heimasíðu sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í samráði við höfund þess.
Stjórn Myndstefs
Tilkynning um ósóttar höfundagreiðslur til Myndstefs
Vakin er athygli myndhöfunda á því að í vörslu Myndstefs eru greiðslur sem ekki hefur reynst unnt að koma til viðkomandi höfunda. Því er beint til hlutaðeigandi myndhöfunda eða erfingja þeirra að þeir hafi samband við skrifstofu Myndstefs sem fyrst og eigi síðar en 5. ágúst n.k.
Athugið - listinn er uppfærður reglulega.
Arnór G. Bieltvedt
Axel Einarsson
Axel Smith
Árni Elfar
Ásgeir Bjarnþórsson
B. Norðdahl
Baldvin Árnason
Benedikt Jónsson
Birgir Jónsson
Bjarni Guðmundsson
Bjarni Hendriksson
Bjarni Jónsson
Bjartur
Björgvin S. Haraldsson
Charles Fazzino
Dagur Sigurðarson
Eggert E. Laxdal
Eggert Magnússon
Elías B.Halldórsson
Elías Hjörleifsson
Emil Thorodsen
Eyborg Guðmundsdóttir
Friðrik Jónsson
Garðar Loftsson
Guðjón R. Sigurðsson
Guðmundur Már Einarsson
Guðmundur Sigurðsson
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Örn Gunnarsson
Gunnar Hjaltason
Gylfi Gíslason
Herbert Sigússon
Höskuldur Björnsson
Ingolfur av Reyni
Ísleifur Einarsson
Ísleifur Konráðsson
Jóhann Eyfells
Jóhann Sigurðsson
Jón Helgason
Jón Jónsson
Jón Þorleifsson
Kári Einarsson
Lýður Sigurðsson
Magnús Jónsson
Nelson Diego
Ólafur Túbals
Ómar Stefánsson
Selma Jónsdóttir
Sigurður Arnórsson
Sigurður Kristjánsson
Sigurlaug Jónasdóttir
Sigurður Benediktsson
Sigurður Haukur
Sigurður Kristjánsson
Sigurlaug Jónasdóttir
Snorri Arinbjarnar
Sóley Eiríksdóttir
Stefán Axel Valdimarsson
Sölvi Helgason
Valgerður Gunnarsdóttir
Vigdís Kristjánsdóttir
Vilborg Ester Kjartansdóttir
W. Meyer
Þorleifur Einarsson
Þóra Pjetursdóttir
Þórdís Árnadóttir
Þórður Halldórsson
Þórey Magnúsdóttir
Örn Þorsteinsson
29.október 2009
Hagnýtt Hádegi - hádegisfyrirlestrar Hönnunarmiðstöðvar og Hönnunarsjóðs Auroru
Knútur Bruun, formaður Myndstefs, fjallar um höfundarréttarmál á Þjóðminjasafni Íslands, fimmtudaginn 29. október kl: 12:00-13:00.
14.október 2009
Þriðjudaginn 13. október kl. 17:00 var úthlutað verkefnastyrkjum og ferða- og menntunarstyrkjum Myndstefs
Í úthlutunarnefnd Myndstefs sátu; Kristján Maack, Guðrún le Sage de Fontenay og Hallgrímur Friðgeirsson
15 umsækjendur fengu verkefnastyrk að upphæð 200.000 kr. hver og 10 umsækjendur hlutu ferða- og menntunarstyrk að upphæð 100.000 kr. hver.
Fjármunir sem Myndstef úthlutar með þessum hætti eru greiðslur til samtakanna vegna notkunar á vernduðum myndverkum en eitt af hlutverkum samtakanna er að koma þeim greiðslum til myndhöfundanna, meðal annars í formi styrkja.
Þetta er áttunda árið sem stjórn Myndstefs veitir styrki af þessu tagi og nema þeir rúmlega 40,5 milljónum á þessu átta ára tímabili.
Styrkþegar verkefnastyrkja 2009
Eftirtaldir aðilar hlutu verkefnastyrk að upphæð 200.000 hver, alls bárust 47 umsóknir um þennan styrk í ár:
Anna Fjóla Gísladóttir – Ljósmyndabók um Akureyri
Arkítektafélag Íslands – Yfirlitssýning um Högnu Sigurðardóttur
Bjargey Ólafsdóttir - Einkasýning í BRAC, N.Y.
Elva Guðrún Ólafsdóttir – Innsetning/skúlptúr í Litháen
Erla Þórarinsdóttir – Tengsl málverks og ljósmyndar “Viðmið/references”
Guðjón Bjarnason – Vegna tveggja sýninga í N.Y.
Guðmundur S. Viðarsson – Ljósmyndaverkefni um gamla og nýja tíma í Reykjavík
Hildur Inga Björnsdóttir – Listrænn fatnaður
Hlíf Ásgrímsdóttir – Myndbönd, útgáfa bókar og ýmislegt annað
Hulda Rós Guðnadóttir – Einkasýning í Berlín
Ívar Brynjólfsson – Ljósmyndabók með eigin verkum
Kristinn Már Pálmason – Málverkaraðir/ myndlistarsýningar
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir – Vinnuaðstaða og sýningarhald í N.Y.
Messíana Tómasdóttir – Leikmynd unglingaóperunnar “Farfuglinn”
Sigurður Orri Þórhannesson – Teiknimynd/ stuttmynd
Styrkþegar ferða- og menntunarstyrkja 2009
Eftirtaldir aðilar hlutu ferða- og menntunarstyrk að upphæð 100.000 hver, alls bárust 50 umsóknir um þennan styrk í ár:
Anna Gunnarsdóttir – Sýning í Danmörku
Eirún Sigurðardóttir – Sýning Gjörningaklúbbsins á listahátíð í N.Y.
Guðný Rósa Ingimarsdóttir – Samsýning í N.Y. “Volcano Lovers”
Hildur Bjarnardóttir - Samsýning í N.Y. “Volcano Lovers”
Ingunn Anna Þráinsdóttir – Ráðstefna í Bornholm
Logi Bjarnason – Sýning í Gerðarsafni
Ólöf Jónína Jónsdóttir - Sýning Gjörningaklúbbsins á listahátíð í N.Y.
Rósa Gísladóttir – Sýning og ráðstefna MAR, Ítalíu
Sigrún Inga Hrólfsdóttir - Sýning Gjörningaklúbbsins á listahátíð í N.Y.
Vignir Jóhannsson – Sýning og ráðstefna í Rússlandi
Úthlutunarnefnd á vegum Myndstefs fer yfir allar umsóknir og ákveður styrkveitingar.
23.september 2009
Ný gjaldskrá Myndstefs
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt nýja gjaldskrá Myndstefs.
Gjaldskráin tekur gildi frá og með 22.september 2009 eða frá og með birtingu auglýsingar um staðfestingu gjaldskrár í Stjórnartíðindum.
| AUGLÝSING | |
| um staðfestingu gjaldskrár Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs vegna endurbirtingar myndverka. | |
|
Hér með tilkynnist að menntamálaráðherra hefur staðfest meðfylgjandi gjaldskrá Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs vegna opinberrar endurbirtingar myndverka sbr. 2. mgr. 25. gr. höfundalaga nr. 73/1972, með áorðnum breytingum, sbr. fylgiskjal með auglýsingu þessari. Gjaldskrá þessi var samþykkt á aðalfundi Myndstefs 29. maí árið 2009, sbr. samþykktir fyrir Myndhöfundasjóð Íslands - Myndstef nr. 422/1995. Tekið er fram að um viðmiðunargjaldskrá er að ræða og er heimilt að víkja frá gjaldskránni bæði til hækkunar og lækkunar. Gjaldskrá þessi tekur gildi við birtingu auglýsingar þessarar og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá nr. 108/2001. Menntamálaráðuneytinu, 3. september 2009. Katrín Jakobsdóttir. Baldur Guðlaugsson. |
Gjaldskrána má skoða í heild sinni hér.



